6.4.05

Grundirnar gróa

Sá tími kemur í ári hvers manns að hann verður að huga að sumarleyfi. Sá tími er nú. Þetta er allt hin erfiðasta ákvörðun að þessu sinni. Félagi siggimus beinir sjónum að Eystrasalti en á sama tíma verður að taka með í reikninginn að dóttir Saga verður fastur félagsskapur í júlí þar sem hennar móðir er búin að skrá sig í dönskubúðir lungann af júlímánuði. Ísland stóð ekki á farseðlinum lengst af en líkur eru til að leið liggi til eyjarinnar freðnu þrátt fyrir allt. Félagi bambi beitir veiðiferð á öngul og það er safaríkt agn. Er hægt að koma þessu öllu saman svo að alls sé notið og engu leyft?

1 Comments:

Blogger siggimus said...

eigi leyfir maður músinni svo gjörla

en nú er búið að kaupa miða!

6:38 PM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home