29.5.06

Heimsókn

Bambigutti gerði stutt stopp og lét sér nægja að svelgja einum bjór og svörtum kaffibolla á versta sóðapöbb sem Stokkhólmur hefur uppá að bjóða og sporðrenndi síðan hálfum borgara á Burger King hinum megin við götuna en lét frönskurnar eiga sig. Eftir að hafa drukkið upp vodkabyrgðir Moskvuborgar dagana á undan var guttinn ekki reiðubúinn að gera annað en að leggjast marflatur útaf á flugstöðinni þennan prýðisfína sunnudag í maí. Því var honum snarlega skóflað upp í næstu áætlunarbifreið og sendur af stað aðra leið.

7 Comments:

Blogger siggimus said...

waiters??

5:57 PM  
Blogger siggimus said...

hahh!!

jói fékk heiftarlega matareitrun, búinn að vera ælandi í sólarhring :/

alveg er ég viss um að það var helvítis hamborgarinn! gæinn lifði af 10 daga í óbyggðum rússlands, kom svo við í svíþjóð í klukkutíma og fékk matareitrun á börger kíng!!

9:38 AM  
Blogger siggimus said...

uuu, ehemm

greyið jói!

þú ert í bænum okkar allra kall...

9:39 AM  
Blogger jonkurteiz said...

waiters er dauður. íslendingatorfan kom honum í gröfina illu heilli. nei þetta var ljót búlla við hliðina á belgíska barnum sem var lokaður á sunnudegi. úr öskunni í eldinn. það er ekki allra að jóðla á sænskum whopper sjáðu til. guðblessi.

11:22 AM  
Blogger siggimus said...

megi hann hvíla í friði!


þar hefur líf verið murkað úr nokkrum lítilsverðum stundum með lúmsku höggi bjórkollu í hnakkann


gleymast seint stundirnar á meðan á leik íran og einkurs annars á ól stóð, og við umkringdir af írönum og siggimus tók af einum þeirra myndir þartil waiterinn sagði honum að myndatökur væru ekki leyfðar


ó, ðe memmrís!

*dæs!



og jói var ekki sem verstur heldur

...sona stundum

11:44 AM  
Blogger Jodazz said...

Bévaðir að gera grín að fárveikum manninum. Ég hef líklega ekki náð því að verða jafn pödduveikur síðustu ár! Vona að ég geti heimsótt þig í betra formi á næstunni Stebbi minn og skoðað þá fína bílinn og íbúðina.

2:51 PM  
Blogger siggimus said...

æi, blessaður hættu þessu endalausa jarmi kjelling

veit ekki betur en sumir hafi svarið og sárt við lagt að þeir kæmu ekki lífs frá rússíá


svindlari!

11:41 AM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home