Lóurnar kvaka
Jonkurteiz hefur tekið eftir því að með vorinu hefur braskaraeðlið kraumað og hann er sést oft í skuggalegum afkimum falbjóðandi vöru og þjónustu ýmsa. Hann er þó síli í torfunni og varla skiptir nema sænskur þúsundkall um eigenda þegar hann stendur í mestu stórræðunum. Nú er heimasíða þýdd fyrir þurfandi aðila og svo bauðst brakandi þúsundkall fyrir flauturnar á drossíunni plús nýtilverkaðar flautur í þokkabót. Get ég gert þér smáviðvik?