22.4.05

Einbjörn

Það fór ekki þannig að mér héldist á henni frekar en öðrum af hennar tæi. Fyrirrennarar eru runnir á braut og nú er hún það einnig. jonkurteiz bætist enn í hóp góðra vina og yfirlýsir stuðningi á félaga bambagutta sem einsamall hefur frú. One is such a lonely number segir Madonna en það þarf ekki að vera svo. Það má alltaf kaupa burkna.

6.4.05

Grundirnar gróa

Sá tími kemur í ári hvers manns að hann verður að huga að sumarleyfi. Sá tími er nú. Þetta er allt hin erfiðasta ákvörðun að þessu sinni. Félagi siggimus beinir sjónum að Eystrasalti en á sama tíma verður að taka með í reikninginn að dóttir Saga verður fastur félagsskapur í júlí þar sem hennar móðir er búin að skrá sig í dönskubúðir lungann af júlímánuði. Ísland stóð ekki á farseðlinum lengst af en líkur eru til að leið liggi til eyjarinnar freðnu þrátt fyrir allt. Félagi bambi beitir veiðiferð á öngul og það er safaríkt agn. Er hægt að koma þessu öllu saman svo að alls sé notið og engu leyft?